- Auglýsing -
Nýbakaðir deildarmeistarar sænsku úrvalsdeildarinnar, IFK Kristianstad, leika til úrslita í bikarkeppninni í karlaflokki á morgun. Kristianstad vann HF Karlskrona í fyrri viðureign undanúrslita bikarkeppninnar í Halmstad Arena í dag, 37:35.
Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði tvö mörk IFK sem var fimm mörkum undir þegar fyrri hálfleikur var að baki, 23:18.
Arnór Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir HF Karlskrona.
Mikil spenna var á síðustu mínútum leiksins eftir að leikmenn Karlskrona bitu hressilega frá sér og jöfnuðu metin, 35:35.
Úrslitaleikur á morgun
Síðar í dag skýrist hvort Ystads IF HF eða Amo HK mætir IFK í úrslitaleik keppninnar á morgun. HF Karlskrona leikur um bronsverðlaunin við taplið síðari undanúrslitaleiksins.
- Auglýsing -


