Fram lagði ÍR í fyrstu viðureign liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í Skógarseli í dag. Fram-liðið var með frumkvæðið í leiknum frá upphafi til enda og verður sigur liðsins að teljast sanngjarn.
Næsta viðureign liðanna fer fram í Lambhagahöllinni á miðvikudagskvöld. Flautað verður til leiks klukkan 19.30 ef áætlun verður haldið. Takist fram að vinna leikinn á miðvikudagskvöld tekur liðið sæti í undanúrslitum.
ÍR-ingar eru strax komnir með bakið upp að vegg og mega ekki tapa næstu viðureign.
Fram-liðið, sem hefur átt misjöfnu gengi að fagna á leiktíðinni, var ákveðnara frá fyrstu mínútu í Skógarseli. Þegar á fyrri hálfleik leið var forskot liðsins orðið þrjú mörk. Aðeins lifnaði yfir ÍR undir lok hálfleiksins og aðeins skakkaði einu marki í hálfleik, 16:15, Fram í vil.
ÍR jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks, 17:17, en náðu aðeins að komast yfir þrátt fyrir tækifæri í þeim efnum. Fram-liðið tók forystuna á ný og lét hana aldrei af hendi.
Mörk ÍR: Sara Dögg Hjaltadóttir 7, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 6, Matthildur Lilja Jónsdóttir 4, Anna María Aðalsteinsdóttir 3, Katrín Tinna Jensdóttir 3, María Leifsdóttir 3, Solveig Lára Kjærnested 1.
Varin skot: Sif Hallgrímsdóttir 12, Hildur Einarsdóttir 2.
Mörk Fram: Ásdís Guðmundsdóttir 7, Katrín Anna Ásmundsdóttir 7, Hulda Dagsdóttir 5, Harpa María Friðgeirsdóttir 4, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 3, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 2, Valgerður Arnalds 2, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 1.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 13.
Klukkan 17.30 eigast Haukar og KA/Þór við fyrsta sinn í fyrstu umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna á þessari leiktíð.



