Evrópumeistarar SC Magdeburg stigu stórt skref í átt að þýska meistaratitlinum í handknattleik karla í dag er þeir lögðu meistaralið síðasta árs, Füchse Berlin, 35:33, í GETEC Arena. Magdeburg er þar með átta stigum á undan Berlínarliðinu þegar átta umferðir eru eftir. Flensburg situr í öðru sæti, sjö stigum á eftir Magdeburg sem hefur aðeins tapað einum leik í deildinni á keppnistímabilinu.
Gísli Þorgeir Kristjánsson lék við hvern sinn fingur í leiknum. Hann skoraði sex mörk og gaf sjö stoðsendingar. Hann var allt í öllu í sóknarleik Magdeburg-liðsins. Staðan var jöfn í hálfleik, 15:15.
Staðan var jöfn, 31:31, þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Vel studdir af hátt í sjö þúsund áhorfendum voru heimamenn sterkari á endasprettinum. Lukas Mertens skoraði 35. markið og varð mikill fögnuður átta sekúndum fyrir leikslok.
Ómar Ingi Magnússon skoraði þrjú mörk fyrir Magdeburg og gaf tvær stoðsendingar. Elvar Örn Jónsson skoraði ekki en var frábær í vörninni.
Magnus Saugstrup var markahæstur með níu mörk. Matthias Musche og Felix Claar skoruðu sex mörk hvor ásamt Gísla Þorgeiri.
Mathias Gidsel skoraði 11 mörk fyrir Füchse Berlin og Lasse Bredekjær Andersson skoraði átta sinnum.
Matej Mandic markvörður Magdeburg var frábær þær liðlega 30 mínútur sem hann stóð vaktina með 40% markvörslu.
Dejan Milosavljev var afar góður í marki Füchse Berlin í fyrri hálfleik. Mesti móðirin rann af Serbanum þegar á leið og lauk hann leik með 28% hlutfallsmarkvörslu.
Staðan:


