- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Íslendingarnir tylltu sér í efsta sætið

- Auglýsing -

Blomberg-Lippe settist í gær í efsta sæti efstu deildar þýska handknattleiksins í framhaldi af öruggum sigri á SV Union Halle-Neustadt, 33:20, á útivelli í 19. og næstsíðustu umferð. Íslensku landsliðskonurnar þrjár hjá BLomberg-Lippe komu mikið við sögu í sigurleiknum í SWH Arena.

  • Andrea Jacobsen skoraði eitt mark og varði eitt skot í vörninni.
  • Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði ekki mark en gaf sex stoðsendingar, var með eitt skapað færi, náði einu frákasti og var einu sinni vikið af leikvelli í tvær mínútur.
  • Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk, gaf fjórar stoðsendingar, var með eitt skapað færi og vann eitt vítakast.


Blomberg-Lippe er stigi á undan Borussia Dortmund. Síðarnefnda liðið á tvo leiki eftir en Blomberg-Lippe á einni viðureign ólokið. Dortmund mætir Oldenburg á miðvikudaginn áður en liðið sækir Blomberg-Lippe heim í lokaumferðinni næsta laugardag í úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn.

Eftir að deildarkeppninni lýkur tekur við hlé vegna landsleikja áður en úrslitakeppnin um þýska meistaratitilinn hefst um miðjan apríl.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -