Portúgalska handknattleikssambandið ætlar að hefja rannsókn á dularfullu atviki sem átti sér stað fyrir viðureign FC Porto og Sporting Lissabon í efstu deild portúgalska handknattleiksins í karlaflokki í Dragão Arena í Porto í gærkvöld. Eins og handbolti.is sagði frá í gærkvöldið fundu leikmenn og þjálfari Sporting fyrir ódaun eða ertandi andrúmslofti í búningsklefa í keppnishöllinni í Porto. Sótti svo hart á menn að þjálfarinn Ricardo Costa og línumaðurinn Christian Moga voru fluttir undir læknishendur á sjúkrahúsi.
Fleiri leikmenn fundu til óþæginda og fór svo að þeir skiptu um föt frammi á gangi, utan við búningsklefann.
Alvarlegar aðdróttanir
FC Porto hefur sent frá sér tilkynningu þar sem félagið vísar á bug á að hafa átt þátt í þeim aðstæðum sem leikmenn og þjálfari Sporting urðu fyrir. Segir félagið aðdróttanir alvarlegar og tilefnislausar. Undir eins hafi verið haft samband við Handknattleikssamband Portúgal og lögreglu vegna málsins.
Leikurinn hófst 20 mínútum á eftir áætlun. Sporting vann með þriggja marka mun, 33:30, og stendur enn betur en áður að vígi í meistarakapphlaupinu við Porto.
Orri Freyr Þorkelsson skoraði 11 mörk fyrir Sporting í leiknum.
Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Porto.



