- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ýmir Örn hafði betur gegn Andra og Viggó

- Auglýsing -

Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í FrishAuf! Göppingen lyftust upp í 9. sæti þýsku 1. deildarinnar í dag með sigri á HC Erlangen á heimavelli, 27:24. Ýmir Örn skoraði eitt mark í sigrinum sem var sanngjarn enda heimaliðið lengst af með frumkvæðið.


Andri Már Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Erlangen sem situr áfram í 14. sæti af 18 liðum deildarinnar með stigin sín 17.

Viggó Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir HC Erlangen.

Jafntefli hjá Blæ

Blær Hinriksson skoraði sex mörk, eitt þeirra úr vítakasti, þegar Leipzig náði aðeins öðru stiginu frá viðureign við Eisenach á heimavelli, 29:29. Blær átti einnig eina stoðsendingu.

Stigið hrekkur skammt í fallbaráttu þýsku 1. deildarinnar. Leipzig er með 10 stig eins og Wetzlar en liðin sitja í tveimur neðstu sætunum. GWD Minden er næst fyrir ofan með 12 stig. Leipzig á inni leik á Wetzlar og Minden. Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar við annan mann, er í fjórða neðsta sæti.

Í þriðja leik dagsins í þýsku 1. deildinni gerðu Stuttgart og Lemgo jafntefli, 32:32.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -