Andy Schmid landsliðsþjálfari Sviss í handknattleik karla hefur tekið að sér þjálfun HC Kriens-Luzern, eins af sterkari handknattleiksliðum Sviss. Samhliða nýja starfinu verður Schmid áfram landsliðsþjálfari. Hann þekkir vel til hjá félaginu en þar lauk hann frábærum handknattleiksferli fyrir tveimur árum á fertugasta aldursári.
Guðmundur Þórður Guðmundsson var fyrir nokkrum vikum orðaður við þjálfarastarfið hjá HC Kriens-Luzern.
Schmid tekur við þjálfun af Thomas Zimmermann sem má ekki lengur vera aðalþjálfari HC Kriens-Luzern vegna hertra reglna í Sviss um menntun þjálfara. Zimmermann þarf nú að setjast á skólabekk vilji hann halda áfram þjálfun liða í efstu deildinni í Sviss.
Samningur Schmid við HC Kriens-Luzern er til næstu tveggja ára.
HC Kriens-Luzern er eitt af sterkari handknattleiksliðum í Sviss og hefur verið einn helsti keppinautur Kadetten Schaffhausen sem Óðinn Þór Ríkharðsson leikur með.
Fram var í riðli með HC Kriens-Luzern í riðlakeppni 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á haustmánuðum. Framarar áttu ekki roð í svissneska liðið og tapaði illa í fyrri leiknum ytra, 40:25, en gekk heldur betur í Lambhagahöllinni og tapaði aðeins með fjögurra marka mun, 35:31.


