Haukur Þrastarson er í liði 26. umferðar í þýsku 1. deildinni eftir stórleik sinn með Rhein-Neckar Löwen á laugardaginn. Hann skoraði þá 15 mörk í 18 skotum og gaf auk þess átta stoðsendingar í 14 marka sigri Rhein-Neckar Löwen á HSG Wetzlar, 41:27.
Haukur er sem fyrr efstur á lista yfir þá leikmenn þýsku 1. deildarinnar sem hafa gefið flestar stoðsendingar. Hann hefur gefið 140, 21 fleiri en Gísli Þorgeir Kristjánsson sem er í öðru sæti.

Næst markahæstur Íslendinga
Til viðbótar er Haukur í níunda sæti yfir markahæstu leikmenn þýsku 1. deildarinnar með 146 mörk og 59,6% skotnýtingu. Af Íslendingum í deildinni hefur aðeins Ómar Ingi Magnússon skorað fleiri, alls 186 mörk og 74,4% skotnýtingu.
Óhætt er að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. Á honum er að finna myndskeið með öllum mörkum Hauks í leiknum við Wetzlar í Mannheim Arena á laugardaginn.
https://www.daikin-hbl.de/de/hbl#blaze/story/69c8a41ce71b5ca12dace599
Myndskeið: Flugeldasýning hjá Hauki – áfram vinnur Gummersbach



