- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fórum í gömlu gildin sem hafa reynst okkur best

- Auglýsing -

„Þetta var örugglega einn okkar besti leikur eftir áramótin. Vörn og markvarsla var frábær,“ sagði Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar glaður í bragði eftir að flautað var til leiksloka í Myntkauphöllinni í kvöld þar sem Mosfellingar unnu sannfærandi sigur á Haukum, 26:22, í annarri viðureign liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Þar með standa leikmenn beggja liða frammi fyrir oddaleik á Ásvöllum á skírdag.

Fórum vel yfir okkar mál

„Við fórum bara vel yfir okkar mál að loknum síðasta leik. Þá lékum við mjög illa í fyrri hálfleik en tókst að sýna aðeins betri hliðar í þeim síðari sem við vildum byggja ofan þegar komið var út í þennan leik,“ sagði Stefán og vitnaði til útreiðarinnar sem Afturelding fékk í fyrstu viðureigninni við Hauka síðasta fimmtudag.

„Við köfuðum djúpt fyrir þennan leik, fórum í gömlu gildin sem reyndust okkur best þegar vel gekk í vetur. Leikmenn komu með mikla orku inn í leikinn. Þegar okkur tekst að leika af þessum mætti þá er ýmislegt hægt,“ sagði Stefán enn fremur, sem hrósaði mjög varnarleiknum og markvörslunni sem Haukar áttu svo sannarlega ekki réttu svörin við.

Afturelding barðist fyrir oddaleik – Einar Baldvin var frábær

Mikil orka

Stefán var enn fremur sáttur við sóknarleikinn. „Við vitum vel að við verðum að hafa fyrir því að vera góðir. Við vorum svekktir eftir fyrsta leikinn við Hauka en unnum okkur vel í gegnum það og mættum með mikla orku í þennan leik,“ bætti Stefán við.

Þetta er Afturelding!

„Karakterinn var frábær í mínum mönnum. Í hvert sinn sem Haukar jöfnuðu þá endurheimtum við forystuna strax aftur. Framlag manna var ótrúlega mikið hjá öllum. Þetta er Afturelding og það sem við viljum sýna. Þegar við leikum svo þá getum við unnið hvaða lið á Íslandi,“ sagði Stefán sem var þar með rokinn af stað að hefja undirbúning fyrir oddaleikinn á Ásvöllum á fimmtudaginn.

Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -