- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Reynir og fleiri við kappleiki í Evrópu í kvöld

- Auglýsing -

Reynir Stefánsson formaður dómaranefndar HSÍ verður eftirlitsmaður á fyrri viðureign IFK Kristianstad og króatíska liðsins RK Nexe í útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram í Kristianstad Arena og hefst klukkan 16.45.


Þrjár viðureignir til viðbótar fara fram í kvöld í útsláttarkeppninni. Leikir síðari umferðar útsláttarkeppninnar verða að viku liðinni. Sigurliðin fjögur í útsláttarkeppninni taka sæti í átta liða úrslitum ásamt sigurliðunum fjórum úr riðlakeppni 16-liða úrslita.

Einar Bragi Aðalsteinsson leikur með IFK Kristianstad gegn RK Nexe í kvöld, aðeins þremur dögum eftir að sænska liðið varð bikarmeistari.

Fleiri verða á ferðinni

Fleiri Íslendingar taka þátt í leikjum útsláttarkeppninnar í kvöld. Kristján Örn Kristjánsson og félagar í Skanderborg AGF mæta Flensburg á heimavelli.

Tryggvi Þórisson verður að vanda með Elverum er liðið sækir Montpellier heim til Frakklands.

Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson verða væntanlega með MT Melsungen í heimsókn til danska liðsins Fredericia í Middelfart Sparekasse Arena.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -