- Auglýsing -
Eins og kom fram í gærkvöldi er FH komið í undanúrslit Olísdeildar karla í handknattleik. FH vann Fram í tvígang í átta liða úrslitum, 28:26 í Kaplakrika síðasta fimmtudag og 32:27 í Lambhagahöllinni í gærkvöld.
Ekki liggur fyrir hvort FH mætir Aftureldingu eða Haukum í undanúrslitarimmu. Oddaleik á fimmtudag á Ásvöllum þarf á milli Hauka og Aftureldingar til að leiða í ljós hvort liðið mætir FH.
Jói Long var með myndavélina á lofti í gærkvöld þegar FH tryggði sér sæti í undanúrslitum. Nokkrar myndir frá Jóa eru hér fyrir neðan.
-smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri.
FH sópaði út Íslandsmeisturunum
- Auglýsing -




































