Rússneski handknattleiksmaðurinn og þjálfarinn Eduard Koksharov er látinn, 50 ára að aldri. Meshkov Brest, meistaraliðið í Belarus hvar Koksharov var þjálfari er hann féll frá, segir frá óvæntu andláti Rússans.
Koksharov átti að baki langan feril, lengst af sem einn af fremstu handknattleiksmönnum sinnar kynslóðar og síðar sem þjálfari. Hann lék 226 landsleiki fyrir rússneska landsliðið og skoraði 1.110 mörk. Koksharov lék m.a. með SKIF Krasnodar, RK Celje og Chekhovskiye Medvedi. Í 12 ár var Koksharov hjá RK Celje í Slóveníu og var m.a. í sigurliði félagsins í Meistaradeild Evrópu 2004.
Koksharov varð Ólympíumeistari með Rússu árið 2000 og heimsmeistari þremur árum fyrr. Hann var í úrvalsliði HM 2001, 2003, 2005 og 2007 og á EM 2004 og 2006.
Sneri sér að þjálfun
Eftir að leikmannsferlinum lauk 2013 sneri Koksharov sér að þjálfun. Hann stýrði Krasnodar, var í þjálfarateymi Vardar Skope, var þjálfari rússneska karlalandsliðsins 2017 til 2020, þjálfaði kvennalið Rostov-Don 2022 til 2023. Síðustu þrjú árin var Koksharov þjálfari karlaliðs Meshkov Brest í Minsk.



