- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Haukur Ingi klæðist bláu

- Auglýsing -

Haukur Ingi Hauksson hefur ákveðið að segja skilið við HK og ganga til liðs við Fram. Haukur Ingi, sem er hægrihandar skytta, hefur vaxið sem handknattleiksmaður á síðustu árum og m.a. átt sæti í yngri landsliðum Íslands undanfarin sumur.


Haukur skoraði 119 mörk í 22 leikjum Hauka í Olísdeildinni í vetur auk þess að skora 10 mörk í tveimur viðureignum HK liðsins gegn Val í átta liða úrslitum úrslitakeppni Olísdeildar.

„Haukur Ingi passar vel inn í hugmyndafræði okkar að vera með unga duglega stráka sem eru tilbúnir að leggja sig fram á hverjum degi til að verða betri leikmenn, bæði fyrir sig og FRAM. Ég er mjög spenntur að vinna með honum áfram og hjálpa honum að þróa sinn leik, jafnt í vörn og sókn,“ er haft eftir Einari Jónssyni þjálfara Fram í tilkynningu í morgun.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -