Arnór Atlason aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins er sagður vera undir smásjá Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfara Evrópu- og heimsmeistara Danmerkur í handknattleik karla. Jacobsen leitar að aðstoðarmanni eftir að Henrik Kronborg lét af störfum fyrir síðustu helgi.
Danski handboltamiðilinn HBold segir frá meintum áhuga Jacobsen á að krækja í Arnór og vísar til RT Handball.
Arnór hefur verið aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Íslands síðustu þrjú ár samhliða því að vera aðalþjálfari danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro. Hann er væntanlega að losna undan samningi við HSÍ eins og Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari sem er í viðræðum við HSÍ um þessar mundir.
Arnór hefur búið í Danmörku um langt árabil og getið sér einstaklega gott orð sem þjálfari og leikgreinandi, fyrst sem leikmaður og síðar sem þjálfari TTHolstebro, einnig sem þjálfari yngri landsliða Danmerkur og aðstoðarþjálfari Danmerkurmeistara Aalborg Håndbold áður en hann færðist sunnar á Jótland.


