Haukar unnu KA/Þór öðru sinni í fyrstu umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld, 25:20. Leikið var í KA-heimilinu. Haukar taka þar með þátt í undanúrslitum Íslandsmótsins og mæta ÍBV. Væntanlega verður fyrsta viðureign liðanna í Vestmannaeyjum 15. apríl. KA/Þórsliðið er komið í sumarfrí eftir að hafa náð inn í úrslitakeppnina sem nýliði deildarinnar.
KA/Þórsliðið hóf leikinn afar vel í kvöld og virtist koma leikmönnum Hauka í opna skjöldu framan af. KA/Þór var yfir, 10:6, eftir liðlega 18 mínútur áður en Díana Guðjónsdóttir og Stefán Arnarson þjálfarar Hauka tóku leikhlé og skipulögðu leik liðsins upp á nýtt. Leikhléið skilaði árangri og Haukar skoruðu strax fimm mörk í röð og komust yfir, 11:10. Í hálfleik var munurinn þrjú mörk, 11:14, Haukum í hag.
Leikmenn Hauka brendu sig ekki á sama soðinu tvisvar. Þeir komu með fulla einbeitingu til leiks í byrjun síðari hálfleiks og gáfu aldrei þumlung eftir, allt til leiksloka.
Sara Sif Helgadóttir, markvörður Hauka og landsliðsins, fékk skot í höfuðið þegar átta mínútur voru til leiksloka og kom ekkert meira við sögu í leiknum. Vonandi dregur höggið ekki dilk á eftir sér fyrir Söru Sif.
Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 5, Trude Blestrud Hakonsen 4, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 4, Kristín A. Jóhannsdóttir 3, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 2, Anna Þyrí Halldórsdóttir 1, Tinna Valgerður Gísladóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 1, 4,8% – Selma Sigurðardóttir 1, 20%.
Mörk Hauka: Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Embla Steindórsdóttir 5/3, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 4, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 4, Inga Dís Jóhannsdóttir 3, Alexandra Líf Arnarsdóttir 2, Aníta Eik Jónsdóttir 1, Sara Marie Odden 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 9/1, 37,5% – Elísa Helga Sigurðardóttir 3, 37,5%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



