- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stjarnan og Grótta bítast um sæti í Olísdeildinni

- Auglýsing -

Stjarnan og Grótta mætast í úrslitum umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik. Liðin lögðu andstæðinga sína í undanúrslitum öðru sinni í kvöld sem nægir til þess að binda enda rimmur liðanna. Grótta lagði Víking í Virkinu í Safamýri, 28:22, og Stjarnan burstaði FH, 35:21, í Kaplakrika.


Fyrsti úrslitaleikur Gróttu og Stjörnunnar verður fimmtudaginn 16. apríl í Hekluhöllinni í Garðabæ. Vinna þarf þrjá leiki til þess að öðlast keppnisrétt í Olísdeild á næstu leiktíð. Þurfi fimm viðureignir liggur ljóst fyrir að kvöldi 29. apríl hvort Grótta eða Stjarnan leiki í Olísdeild.

Víkingur – Grótta 22:28 (10:14).

Mörk Víkings: Valgerður Elín Snorradóttir 10, Auður Brynja Sölvadóttir 7, Mattý Rós Birgisdóttir 2, Emilía Ína Burknadóttir 1, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 1, Sunna Katrín Hreinsdóttir 1.
Varin skot: Þyri Erla L. Sigurðardóttir 6.

Mörk Gróttu: Katrín S. Scheving Thorsteinsson 8, Ída Margrét Stefánsdóttir 5, Hrafnhildur Hekla Grímsdóttir 4, Svandís Birgisdóttir 3, Lilja Hrund Stefánsdóttir 3, Edda Steingrímsdóttir 2, Guðrún Þorláksdóttir 1, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 1, Kristín Lísa Friðriksdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 8, Anna Karólína Ingadóttir 1, Soffía Helen Sölvadóttir 1.

FH – Stjarnan 21:35 (7:13).

Mörk FH: Katrín Ósk Ástþórsdóttir 6, Eva Guðrúnardóttir Long 4, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 3, Thelma Dögg Einarsdóttir 2, Heiðrún Rós Lýðsdóttir 1, Elísa Björt Ágústsdóttir 1, Telma Medos 1, Hafdís Hera Arnþórsdóttir 1, Guðrún Ólafía Marinósdóttir 1, Dagný Þorgilsdóttir 1.
Varin skot: Szonja Szöke 9.

Mörk Stjörnunnar: Inga Maria Roysdottir 10, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 5, Rakel Dórothea Ágústsdóttir 5, Natasja Hammer 4, Aníta Björk Valgeirsdóttir 3, Vigdís Arna Hjartardóttir 3, Þóra Hrafnkelsdóttir 1, Rakel Guðjónsdóttir 1, Eva Björk Davíðsdóttir 1, Hanna Guðrún Hauksdóttir 1, Hanna Guðrún Hauksdóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 12, Margrét Einarsdóttir 2.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -