- Auglýsing -
Birgir Steinn Jónsson var markahæstur leikmanna IK Sävehof er þeir hófu úrslitakeppnina í sænsku úrvalsdeildinni af miklum krafti í gær með sigri á Hammarby IF, 28:26. Leikið var í Stokkhólmi, á heimavelli Hammarby.
Birgir Steinn, sem hafði hægt um sig í leikjunum á undan, skoraði sjö mörk í sigurleiknum í gær.
Gunnar Steinn Jónsson fyrrverandi landsliðsmaður er einn þeirra sem eru í þjálfaratreymi Hammarby.
Næst mætast liðin í Partille, heimavelli IK Sävehof, á þriðjudaginn. Vinna þarf þrjár viðureignir til þess að komast áfram í undanúrslit.
- Auglýsing -



