Haukar mæta FH-ingum í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Haukar lögðu Aftureldingu í oddaleik í átta liða úrslitum í Kuehne+Nagel höllin á Ásvöllum í kvöld, 32:24. Fyrsti undanúrslitaleikur FH og Hauka fer fram í Kaplakrika þriðjudaginn 7. apríl.
Viðureign Hauka og Aftureldingar var jöfn í fyrri hálfleik. Heimaliðið var með frumkvæðið frá upphafi en Mosfellingar voru aldrei langt undan. Staðan var 15:13 í hálfleik.
Í síðari hálfleik tóku Haukar öll völd á leikvellinum og stakk af. Níu mínútum fyrir leikslok var forskot Hauka 11 mörk, 29:18.
Mörk Hauka: Freyr Aronsson 9/4, Hergeir Grímsson 4, Skarphéðinn Ívar Einarsson 4, Birkir Snær Steinsson 3, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 2, Grétar Ari Guðjónsson 2, Ólafur Ægir Ólafsson 2, Össur Haraldsson 2, Sigurður Snær Sigurjónsson 2, Jón Ómar Gíslason 1, Þráinn Orri Jónsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 35% – Grétar Ari Guðjónsson 4, 26,7%.
Mörk Aftureldingar: Árni Bragi Eyjólfsson 5/1, Kristján Ottó Hjálmsson 4, Harri Halldórsson 4, Stefán Magni Hjartarson 3, Ævar Smári Gunnarsson 2, Oscar Sven Leithoff Lykke 2, Ágúst Ingi Óskarsson 2, Ihor Kopyshynskyi 1, Sveinur Olafsson 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 6/2, 18,2% – Bergvin Snær Alexandersson 0.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.


