- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bjarki Már með á ný – Tveir íslenskir sigrar í Ungverjalandi

- Auglýsing -

Bjarki Már Elísson lék í gær sinn fyrsta leik með One Veszprém eftir nokkurra vikna fjarveru vegna meiðsla. Hann skoraði fjögur mörk í 12 marka sigri ungversku meistaranna á grannliðinu Balatonfüredi KSE, 32:20. Þetta var 21. sigur One Veszprém í deildinni í jafnmörgum viðureignum. Hefur liðið fimm stiga forskot í efsta sæti þegar fimm umferðir eru eftir. Stefnir allt í enn eitt einvígi One Veszprém og Pick Szeged um meistaratitilinn á vormánuðum.


Janus Daði Smárason og liðsmenn Pick Szeged halda sínu striki í öðru sæti deildarinnar með 37 stig þegar fimm umferðum er ólokið. Þeir unnu Carbonex-Komló, 37:28, á heimavelli í gær. Segja má að þeir hafi farið langt með að tryggja sér sigurinn í fyrri hálfleik. Forskotið var 10 mörk að honum loknum, 21:11.

Janus Daði skoraði eitt mark.

Meistaradeildarleikir í vikunni

Leikmenn Pick Szeged búa sig undir viðureign við pólska liðið Indurstria Kielce í síðari umferð útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn. Szeged vann fyrri viðureignina á sínum heimavelli, 26:23. Samanlagður sigurvegari beggja viðureigna tekur sæti í átta liða úrslitum keppninnar.

One Veszprém, sem að framan er getið, sækir PSG heim á fimmtudaginn í síðari leik liðanna í áðurnefndri útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu. One Veszprém stendur vel að vígi eftir átta marka sigur á heimavelli, 32:24.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -