- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Veður raskar vonandi ekki Færeyjaferð

- Auglýsing -

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, segir að áætlun kvennalandsliðsins um för til Færeyja í fyrramálið standi eins og sakir standa þrátt fyrir afar slæma veðurspá fyrri morgundaginn. Vonir standa til þess að veðrið bresti ekki á af fullum þunga á Keflavíkurflugvelli fyrr en eftir að flugvélin með íslenska hópinn verður lögð af stað á ellefta tímanum í fyrramálið.


Alls eiga 22 leikmenn, þjálfarar og aðrir starfsmenn landsliðsins pantað far með flugvélinni til Færeyja á morgun. Fram undan er viðureign við færeyska landsliðið í undankeppni Evrópumótsins í Þórshöfn á miðvikudagskvöld.

Arnar segir að ef veður setji strik í reikninginn og íslenski hópurinn komist ekki til Færeyja á morgun þurfi að nýta þriðjudaginn til ferðar til Færeyja, annaðhvort með beinu flugi til Vága eða þá til Kaupmannahafnar og þaðan til baka til Vága. Undirbúningur fyrir leikinn verði þar af leiðandi snubbóttari en ella. Ef landsliðið verður veðurteppt hér á landi verður æft á höfuðborgarsvæðinu. Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi að ekki verða allir leikmenn hópsins hér á landi. Þrjár eru væntanlegar frá Þýskalandi til Færeyja í fyrramálið.

Landsliðshópurinn:

Markverðir:
Hafdís Renötudóttir, Valur (78/5).
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (23/0).

Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (68/116).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (73/99).
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof (35/138).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (40/80).
Elísa Elíasdóttir, Valur (31/28).
Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram (4/5).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (22/34).
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (35/35).
Lovísa Thompson, Valur (39/74).
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (9/1).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (12/8).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (47/193).
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (5/12).
Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (5/1).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -