Vonir standa til þess að kvennalandsliðið í handknattleik komist til Færeyja í dag þrátt fyrir að flugi Icelandair sem til stóð að færi frá Keflavíkurflugvelli klukkan 10.35 hafi verið aflýst. Íslenski hópurinn, sem telur 22, hefur verið bókaður með færeyska flugfélaginu Atlantic Airways samkvæmt upplýsingum sem handbolti.is fékk hjá Jóni Gunnlaugi Viggóssyni, íþróttastjóra HSÍ. Ráðgert er að fara í loftið klukkan 11.45.
Vél Atlantic Airways er á leiðinni til landsins þegar þetta er skrifað um kl. 10.30. Áætlun gerir ráð fyrir að vél færeyska flugfélagsins taki á loft frá Keflavíkurflugvelli klukkan 11.45 með íslenska landsliðið, þjálfara, starfsfólk og aðra farþega.
Uppfært klukkan 12.24: Flugvélin er farin í loftið frá Keflavíkurflugvelli með landsliðið. Lending á Vogaflugvelli eftir u.þ.b. 70 mínútur.
Þrír leikmenn landsins eru rétt ókomnir til Færeyja með flugi frá Danmörku. Eru það Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir leikmenn þýsku deildarmeistaranna Blomberg-Lippe.
Íslenska landsliðið mætir færeyska landsliðinu í undankeppni EM í þjóðarhöll Færeyinga, Við Tjarnir, á miðvikudaginn klukkan 18.
Landsliðshópurinn
Hafdís Renötudóttir, Valur (78/5).
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (23/0).
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (68/116).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (73/99).
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof (35/138).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (40/80).
Elísa Elíasdóttir, Valur (31/28).
Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram (4/5).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (22/34).
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (35/35).
Lovísa Thompson, Valur (39/74).
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (9/1).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (12/8).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (47/193).
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (5/12).
Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (5/1).
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja



