- Auglýsing -
Kvennalandsliðið í handknattleik fór í loftið klukkan 12.30 í með flugvél færeyska flugfélagsins Atlantic Airways áleiðis til Vogaflugvallar. Þar með var óvissu eytt um ferð hópsins til Færeyja en ferðin var uppnámi morgun eftir Icelandair aflýsti flugi sínu til Færeyja.
Flugvél Atlantic Airways átti ekki vandræðum með að lenda á Keflavíkurflugvelli á tólfta tímanum og þaðan af síður að taka á loft klukkustund síðar.
Flugtími milli Keflavíkur og Vogaflugvallar er um 70 mínútur.
Undirbúningur landsliðsins fyrir leikinn við Færeyinga á miðvikudag er þar með á áætlun. Leikurinn fer fram á miðvikudagskvöld í þjóðarhöllinni í Þórshöfn og hefst klukkan 18.
Til stendur að landsliðið fari til Færeyja í dag
- Auglýsing -



