- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Haukur er aðra vikuna í röð í liði umferðarinnar

- Auglýsing -

Haukur Þrastarson leikmaður Rhein-Neckar Löwen er aðra vikuna í röð í liði umferðarinnar í þýsku 1. deildinni í handknattleik, en 27. umferðinni lauk í gær, m.a. með viðureign Rhein-Neckar Löwen og HC Erlangen sem fyrrnefnda liðið tapaði 29:27.


Tapið fyrir HC Erlangen kom ekki í veg fyrir að Haukur næði sér á strik. Hann skoraði m.a. 8 mörk og gaf 9 stoðsendingar. Treysti hann þar með enn betur stöðu sína í efsta sæti skrá þeirra leikmanna sem gefið hafa flestar stoðsendingar í deildinni á keppnistímabilinu. Haukur hefur gefið 149 stoðsendingar í 27 leikjum, 23 fleiri en Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður SC Magdeburg og samherji hjá íslenska landsliðinu.

Eins og fyrr segir þá er Haukur aðra vikuna í liði vikunnar. Hann skoraði þá 15 mörk í 18 skotum og gaf auk þess átta stoðsendingar í 14 marka sigri Rhein-Neckar Löwen á HSG Wetzlar, 41:27.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -