Norska handknattleikskonan Trude Blestrud Håkonsen hefur sagt skilið við KA/Þór eftir árs viðdvöl og náð samningi við Stjörnuna sem tekur yfir næsta keppnistímabil, 2026/2027. Stjarnan sagði frá þessum tíðindum í dag.
Håkonsen hefur skrifað undir tveggja ára samning, reyndar eins og sagt var í fyrra að hún hefði skrifað undir við KA/Þór. Håkonsen er örvhent skytta en getur einnig leikið í hægra horni, „sem gefur liðinu aukinn sveigjanleika í sóknarleiknum,“ segir orðrétt í tilkynningu Stjörnunnar.
Håkonsen skoraði 83 mörk í 21 leik með KA/Þór í Olísdeildinni í vetur auk fimm marka gegn Haukum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Stjarnan leikur til úrslita við Gróttu í umspili Olísdeildar kvenna. Fyrsta viðureign liðanna fer fram 16. apríl.
Umspil Olís kvenna 2026: leikjadagskrá og úrslit


