- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fleiri til Danir til Þórs

- Auglýsing -

Á dögunum samdi Þór Akureyri við danska handknattleiksmanninn Bertram Simonsen hjá Lemvig-Thyborøn og í dag segir félagið frá komu tveggja landa Simonsens, Mikkel Jensen og Oliver Christensen.


Jensen er 20 ára hægri skytta og 192 cm á hæð frá Silkeborg. Hann hefur undanfarin ár spilað hjá SHEA, eða handboltaakademíu Skanderborg, og er sagður hafa nýlega leikið í fyrsta sinn með meistaraflokki Skanderborg.

Christensen er 20 ára vinstri hornamaður og 186 cm. Hann hefur undanfarin fjögur ár leikið með akademíu Skanderborg. Einnig hefur Oliver að einhverju marki tekið þátt í leikjum úrvalsdeildarliðs Skanderborg en með liðinu leikur íslenski landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, Donni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -