„Leikurinn er afar mikilvægur fyrir okkur því víst er að með hagstæðum úrslitum þá verður stigið mikilvægt skref í átt að markmiði okkar sem er að komast á næsta stórmót, EM 2026,“ segir Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik í samtali við handbolta.is um leik kvöldsins; viðureignina við færeyska landsliðið í næstsíðustu umferð undankeppni Evrópumótsins.
Flautað verður til leiks í þjóðarhöll Færeyinga, Við Tjarnir, klukkan 18. Útsending verður frá leiknum á RÚV 2. Með íslenskum sigri jafnar íslenska liðið færeyska og portúgalska landsliðið að stigum í öðru til fjórða sæti riðilsins fyrir lokaumferðina á sunnudaginn.
Samkvæmt upplýsingum frá Færeyjum hafa nærri 2.000 aðgöngumiðar verið seldir á leikinnn.
Sjötta viðureignin við Færeyinga á nærri þremur árum
Viðureignin í kvöld verður sú sjötta á milli landsliða þjóðanna á hálfu þriðja ári, þar af sú fjórða síðan um miðjan október þegar Færeyingar unnu, 24:22, fyrri viðureignina í undankeppninni í Úlfarsárdal. Lið þjóðanna þekkjast því afar vel.

Þekkjast vel
„Við þekkjum þær mjög vel. Að sama skapi veit færeyska liðið hvað í okkur býr. Færeyingar eru með hörkulið. Margir leikmenn liðsins leika í Danmörku og gera það gott. Við erum að fara í hörkuleik,“ segir Arnar og bætir við að mörgu verði að hyggja fyrir viðureignina.
Landsliðshópurinn hefur verið valinn
Vel skipulagt lið
„Eins og áður verðum við að leika mjög góða vörn. Færeyska hefur á að skipa öflugum leikmönnum eins og Jönu Mittún og Maria Nólsoy. Þær eru sterkar kona og konu. Við verðum að vera klárar á að komast í bardagann og stiga um leið inn í hjálparvörnina. Þar á ofan er færeyska liðið mjög skipulagt og vel leikandi þegar það fer í sjö á sex.

Í okkar sóknarleik verðum við að halda áfram frá síðustu leikjum með beinskeyttum og hröðum sóknarleik með sem fæstum mistökum,“ segir Arnar sem lofar skemmtilegum leik fyrir þá sem heima sitja og fylgjast með í sjónvarpi.
Færeyska landsliðið sem mætir Íslandi – Stefnt á hópferð til Þórshafnar
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja


