- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stefán sagður hættur hjá Aftureldingu – Tekur Hrannar við?

- Auglýsing -

Stefán Árnason hefur verið leystur frá starfi þjálfara karlaliðs Aftureldingar samkvæmt heimildum Handkastsins í gærkvöld. Vitnað er til þess að leikmönnum hafi verið tilkynnt uppsögnin gær. Sannast þar að þjóð veit þá þrír vita.

Leiða má líkur til þess að Daníel Berg Grétarsson aðstoðarþjálfari verði einnig að axla sín skinn enda kom hann til Aftureldingar fyrir tilstuðlan Stefáns.


Samkvæmt heimildum handbolti.is eru líkur á að Hrannar Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari Stjörnunnar, taki við þjálfun Aftureldingar af Stefáni. Hrannar er Mosfellingur og var um tíma aðstoðarþjálfari Einars Andra Einarssonar fyrir nokkrum árum.

Hrannar Guðmundsson tekur hugsanlega við Aftureldingu af Stefáni Árnasyni. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Stefán hefur verið þjálfari hjá Aftureldingu í fjögur ár. Hann var í hægri hönd Gunnars Magnússonar, þjálfara meistaraflokks karla, í þrjú ár auk þjálfunar yngri flokka með afar góðum árangri, áður en hann tók við þjálfun meistaraflokks síðasta sumar auk þess að vera yfirþjálfari yngri flokka.

Misjafnt gengi

Á ýmsu hefur gengið hjá Aftureldingu í vetur. Liðið fór vel af stað en missti flugið þegar kom inn nýtt ár og hafnaði í sjötta sæti Olísdeildar. Undir stjórn Stefáns var Afturelding eina liðið sem náði í oddaleik í átta liða úrslitum úrslitakeppni Olísdeildar. Mosfellingar töpuðu fyrir Haukum í oddaleik á Ásvöllum fyrir viku.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -