- Auglýsing -
Línukonan Andrea Ósk Þorkelsdóttir hefur ákveðið að snúa heim í Mosfellsbæinn og ætlar að leika með Aftureldingu næstu 2 árin. Hún kemur til Aftureldingar frá Víkingi. Andrea skoraði 28 mörk í 20 leikjum Víkings í Grill 66-deildinni í vetur.
„Við erum virkilega stolt að Andrea hafi ákveðið að snúa heim í uppeldisfélagið og ætli að taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er fram undan,“ segir í tilkynningu Aftureldingar.
- Auglýsing -


