Hvorki Þorsteinn Leó Gunnarsson né Stiven Tobar Valencia skoruðu fyrir lið sín, FC Porto og Bendfica, þegar þau leiddu saman hesta sína í annarri umferð úrslitakeppni fjögurra efstu liða portúgölsku 1.deildarinnar í kapphlaupi þeirra um meistaratitilinn. Porto vann örugglega á heimavelli, 42:32.
Þrátt fyrir markaleysið virtist Þorsteinn Leó hafa gengið vasklega fram við varnarleikinn. Honum var í tvígang vikið af leikvelli í tvær mínútur í hvort skipti.
Porto og Benfica hafa unnið einn leik hvort og einnig beðið lægri hlut einu sinni í meistarabaráttunni sem er nýlega hafin. Sporting, sem mætur Águas Santas á morgun, vann fyrsta leik sinn, gegn Porto, í leik sem komst í fréttir fyrir sterka óþefjan í búningsklefa sem Sporting fékk í keppnishöllinni í Porto. Ekkert hafa borist fregnir af lyktum þess máls.


