- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Viggó fær hörku samkeppni hjá Flensburg

- Auglýsing -

Allt stefnir í að landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson fái hörkusamkeppni hjá þýska liðinu Flensburg þegar hann kemur til félagsins sumarið 2027. Flensburg hefur einnig samið við portúgalska handknattleiksmanninn Francisco „Kiko“ Costa. Hann leikur sömu stöðu og Viggó.


Kiko Costa er mikill kosta handknattleiksmaður sem hefur svo sannarlega gert það gott með Sporting Lissabon og portúgalska landsliðinu á undanförnum árum. Var hann um skeið orðaður við Barcelona.

Eftir því sem næst verður komist mun eldri bróðir Kiko, Martím Costa, eiga í viðræðum við Flensburg. Faðirinn, Ricardo, hefur á hinn bórinn ekki áhuga á að fara til Þýskalands. Hann ætlar áfram að halda um stjórnvölinn hjá Sporting Lissabon en leyfa ungnum að fljúga úr hreiðrinu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -