- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stjarnan í góðri stöðu eftir sigur á baráttuglöðum Harðarmönnum

- Auglýsing -

Stjarnan stendur vel að vígi í úrslitum umspils Olísdeildar karla eftir að hafa lagt Hörð, 24:21, í annarri viðureign liðanna á Ísafirði í kvöld. Næst leiða liðin saman hesta sína í Hekluhöllinni á miðvikudaginn. Takist Stjörnunni að vinna þá viðureign er keppnisréttur í Olísdeild karla á næstu leiktíð í höfn.


Fyrsta viðureign liðanna var helst til og ójöfn en viðureignin í kvöld var mun betri, alltént af hálfu Harðarmanna. Eftir slæma byrjun þá sóttu heimamenn í sig veðrið og voru aðeins þremur mörkum undir í hálfleik, 13:10. Í síðari hálfleik tókst Ísfirðingum að sauma aðeins að Stjörnumönnum og minnka muninn í tvö mörk um skeið. Pétur Þór Jónsson skoraði 21. mark Harðar þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir, 23:21. Nær komust Harðarmenn ekki þrátt fyrir ákafar tilraunir. Stjörnumenn stóðu af sér storminn og stigu sigurdans á gólfi íþróttahússins á Torfnesi áður en haldið var í steypibað.

Mörk Harðar: Jose Esteves Lopes Neto 6, Shuto Takenaka 4, Guilherme Carmignoli De Andrade 3, Kei Anegayama 3, Petr Hlavenka 2, Pétur Þór Jónsson 2, Axel Vilji Bragason 1.
Varin skot: Stefán Freyr Jónsson 11.

Mörk Stjörnunnar: Ísak Logi Einarsson 11, Jón Ásgeir Eyjólfsson 4, Atli Hrafn Bernburg 2, Daníel Karl Gunnarsson 2, Hans Jörgen Ólafsson 2, Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð 2, Tandri Már Konráðsson 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 7.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -