- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Verður geggjað að spila fyrir framan fulla höll af áhorfendum

- Auglýsing -

„Við höfum farið vel yfir það sem betur mátti fara í leiknum við Færeyinga og erum staðráðnar í að gera betur og vinna úrslitaleikinn sem fram undan er,“ segir Elín Rósa Magnúsdóttir landsliðskona í handknattleik sem mætir með stöllum sínum til leiks við Portúgal á Ásvelli klukkan 16 í dag. Þar stendur fyrir dyrum úrslitaleikur um sæti á Evrópumótinu síðar á þessu ári.

Íslenska liðið þarf að vinna leikinn með eins marks mun og enda þá með sama stigafjölda og Portúgal en fer áfram færri mörgum í mínus, Ísland -15, Portúgal -17.  Reglugerð EHF, grein 9:11, liður f. https://www.eurohandball.com/media/iqugjaze/women-s-ehf-euro-qualifiers-regulations.pdf#page=22


„Ég vona að allir sem hafa sótt sér miða mæti á Ásvelli og styðji við bakið á okkur þannig að fram undan verði frábær sunnudagur. Það er geggjað að spila fyrir framan fulla höll af áhorfendum,“ segir Elín Rósa.

Íslenska landsliðið tapaði fyrri viðureigninni við Portúgal í október sl. með eins marks mun, 26:25. Þar af leiðandi nægir Íslandi að vinna leikinn með eins marka mun í dag til þess að komast áfram, eins og getið er um hér á áfram samkvæmt reglugerð EHF, grein 9:11, liður g.

Elín Rósa hefur fulla trú á íslenskum sigri í dag. Íslenska liðið hafi tekið framförum síðan í viðureigninni við Portúgal auk þess sem það hafi vaxið að reynslu. „Ég held að það sé góður stígandi hjá okkur,“ segir Elín Rósa Magnúsdóttir landsliðskona í handknattleik.

A-landsliðs kvenna – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -