- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tíundi sigur Gummersbach í röð – Áfram fór Haukur á kostum

- Auglýsing -

Gummersbach treysti stöðu sína í fjórða sæti þýsku 1. deildarinnar í gærkvöld með öruggum sigri á HSG Wetzlar, 32:24, á heimavelli. Tapið jók á raunir Rúnars Sigtryggssonar þjálfara HGS Wetzlar þar sem liðið situr áfram í næst neðsta sæti, öðru af tveimur fallsætum þegar reikningarnir verða gerðir upp í lok keppnistímabilsins.


Þetta var tíundi sigurleikur Gummersbach í röð.

Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach auk þess að verja eitt skot í vörninni og vera einu sinni vikið af leikvelli.

Teitur Örn Einarsson skoraði eitt af mörkum Gummersbach-liðsins sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar sem fyrr.

Eftir leikinn í gærkvöld kom fram að þýski landsliðsmaðurinn Julian Köster leikur ekki með Gummersbach á næstunni vegna skaddaðs liðþófa í hné. Hann fer undir læknishendur á morgun.

Stóð á bak við 17 mörk

Ekki nægði það Rhein-Neckar Löwen að Haukur Þrastarson léki við hvern sinn fingur á heimavelli þegar Flensburg kom í heimsókn. Gestirnir unnu með þriggja marka mun, 36:33.

Haukur skoraði sjö mörk, tvö þeirra úr vítaköstum. Einnig gaf Selfyssingurinn 10 stoðsendingar sem átti þátt í að línumaðurinn Jannik Kohlbacher skoraði níu mörk.

Lasse Møller var markahæstur hjá Flensburg með níu mörk. Marko Grgić skoraði sjö mörk.

Einna mesti munurinn á liðunum lá í markvörslunni. Meðan Benjamin Buric varði afar vel í marki Flensburg voru markverðir Rhein-Neckar Löwen voru slakir.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -