- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ísland á EM með glæsibrag – stórsigur á Portúgal

- Auglýsing -

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tryggði sér í dag sæti á EM 2026, sem fer fram í fimm löndum í desember, með því að leggja Portúgal örugglega að velli, 32:24, í lokaumferð 4. riðils undankeppninnar á Ásvöllum.

Ísland hafnar í þriðja sæti 4. riðils með fjögur stig og fer áfram sem eitt af fjórum liðum með bestan árangur í þriðja sæti. Þar vegur sigurinn á Svartfellingum á heimavelli þyngst og sem í einföldustu máli má segja að hann hafi vegið tvöfalt. Ísland var eina liðið af þeim sem hafnaði í þriðja sæti riðlakeppninnar sem vann efsta liðið þegar upp var staðið.

Íslenska liðið fer því á sitt fjórða stórmót í röð og fjórða Evrópumót í sögunni. Um leið er þetta í annað sinn sem Ísland vinnur sér sæti í lokakeppni EM tvisvar í röð. Áður gerðist það 2010 og 2012.


Íslenska landsliðið byrjaði afleitleg og var undir eftir átta mínútur, 1:5. Að loknu leikhlé vann íslenska liðið sig inn í leikinn. Varnarleikurinn breyttist, farið var í fimm plús einn sem riðlaði mjög sóknarleik portúgalska liðsins. Jafn og þetta vann íslenska liðið sig inn í leikinn og komst yfir í fyrsta sinn, 12:11. Forskoti var komið í þrjú mörk í hálfleik, 15:12. Íslenska liðið réði lögum og lofum í síðari hálfleik og jók forskot sitt jafnt og þétt. Á sama tíma fjaraði vonin jafnt og þett úr hjá portúgalska liðinu sem var mest 11 mörkum undir, 31:20.

Hafdís Renötudóttir fór hamförum í marki Íslands og varði 15 skot. Var hún með 45,5% hlutfalls markvörslu.

Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Elín Rósa Magnúsdóttir, Díana Dögg Magnúsdóttir, Hafdís Renötudóttir, Elísa Elíasdóttir, Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Sara Sif Helgadóttir og Sara Dögg Hjaltadóttir landsliðskonur þakkar fyrir frábæran stuðning í kvöld. Ljósmynd/Vilhelm

Ísland – Portúgal 32:24 (15:12).

Mörk Íslands: Elín Klara Þorkelsdóttir 7/3, Elín Rósa Magnúsdóttir 6, Katrín Anna Ásmundsdóttir 4, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 4, Sandra Erlingsdóttir 4/1, Elísa Elíasdóttir 2, Katrín Tinna Jensdóttir 2, Andrea Jacobsen 1, Lovísa Thompson 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 15/2, 45,5% varsla. Sara Sif Helgadóttir 1.

Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -