- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Donni markahæstur – sigur hjá Arnóri og Jóhannesi

- Auglýsing -

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði sjö mörk og var markahæstur leikmanna Skanderborg í jafntefli við Mors-Thy, 36:36, í annarri umferð úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Einnig átti Donni fjórar stoðsendingar í þessum jafna og skemmtilega leik.


Skanderborg er efst í riðli tvö eftir tvær umferðir með fimm stig. Mors-Thy er þar á eftir ásamt TTH Holstebro með þrjú stig. Bjerringbro/Silkeborg rekur lestina án stiga. Enn á nokkuð vatn eftir að renna til sjávar í úrslitakeppninni sem fram fer í tveimur fjögurra liða riðlum. Hvert lið á fjóra leiki eftir.

Arnór Atlason fagnaði sigri með lærisveinum sínum á lánlausu liði Bjerringbro/Silkeborg, 37:34, á heimavelli í gær. Leikurinn var einnig liður í annarri umferð úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn.

Jóhannes Berg Andrason skoraði ekki mark fyrir TTH Holstebro í gær.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -