Blásið hefur verið í glæður handknattleiksáhuga í München, höfuðstað Bæjaralands. Enn einu sinni stendur til að hleypa krafti í íþróttina í borginni sem ekki hefur átt lið í efstu deild þýska handboltans í karlaflokki síðan TSV Milbertshofen með stórskyttuna Erhard Wunderlich heitinn í broddi fylkingar var upp á sitt besta síðla á níunda áratugnum og í upphafi þess tíunda á síðustu öld.
Löngum hefur verið horft til þess að Bayern München hleypti af stokkunum handboltaliði. Af því hefur ekki orðið þrátt fyrir talsverðar vangaveltur. Áhugi fyrir handknattleik í München er töluverður eins og hefur m.a. komið í ljós þegar borgin hefur verið gestgjafi á heims- og Evrópumótum. Einnig hefur verið uppselt á leiki þýska landsliðsins í borginni. Á síðasta ári var í fyrsta skipti leikið í Meistarakeppni Þýskalands í nýrri og glæsilegri íþróttahöll sem byggð var í Ólympíugarði borgarinnar. Uppselt var á leikina, bæði í kvenna- og karlaflokki.

Þótt áhugi almennings á handbolta sé fyrir hendi í München er e.t.v. ekki það sama sagt um þá sem eiga peninga til þess að styðja við bakið á öflugu handboltafélagi.
Fyrir meira en ári stóðu Dominik Klein og Steffen Weinhold, fyrrverandi landsliðsmenn Þýskalands í handknattleik, að baki stofnunar handknattleiksfélagsins Münchner Panther. Stefnan er að byggja jafnt og þétt upp keppnislið í karlaflokki sem verði komið í hóp efstudeildarliða um miðjan næsta áratug undir heitinu HG München.
Fram undan er sameining HG München og TuS Fürstenfeldbruck, sem nú leikur í suðvesturhluta 3. deildar en fellur í 4. deild í vor. Byrjað verður frá grunni undir heitinu HG München sem tekur yfir keppnisleyfi TuS Fürstenfeldbruck.
„Við teljum að það sé vænlegasti kosturinn í stöðunni að byggja upp handboltalið frá grunni í München og vinna okkur jafnt og þétt í hóp þeirra bestu,“ segir Dominik Klein samkvæmt Sport Bild.
Í fyrstu, þ.e. frá næsta tímabili, mun liðið áfram spila leiki sína í Wittelsbacherhalle í Fürstenfeldbruck. Með tíð og tíma standa vonir til þess að heimaleikir liðsins í hinni nýju SAP Arena í Ólympíugarðinum í München.



