- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Orri Freyr í úrslitaleikinn – Stiven heltist úr lestinni

- Auglýsing -

Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar í Sporting Lissabon leika til úrslita í portúgölsku bikarkeppninni við Águas Santas. Sporting lagði Martimo, 40:37, í undanúrslitaleik í gær á Madeira. Á sama tíma tapaði Benfica fyrir Águas Santas í hinni viðureign undanúrslita, 31:28.


Orri Freyr skoraði fjögur mörk í leiknum á Madeira í gær. Francisco Costa var markahæstur eins og stundum áður með 11 mörk.

Stiven Tobar Valencia skoraði fimm mörk fyrir Benfica í vonbrigðaleiknum við Águas Santas. Mikita Vailupau var atkvæðamestur með sex mörk.

Ekki liggur opinberlega fyrir hvenær úrslitaleikur Sporting og Águas Santas verður háður.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -