Lena Margrét Valdimarsdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við Fram á nýjan leik í sumar að lokinni árs veru hjá Svíþjóðarmeisturum Skara HF. Handknattleiksdeild Fram segir frá væntanlegri komu Lenu Margrétar í dag.
Lena Margrét, sem er 25 ára gömul og örvhent skytta, lék upp yngri flokka með Fram og var í meistaraflokksliði félagsins allt fram til ársins 2020 er hún söðlaði um og gekk til liðs við Stjörnuna. Hjá Garðabæjarliðinu var Lena Margrét í tvö ár uns hún hélt á ný í herbúðir Fram og var þar í tvö ár. Fyrir ári ákvað Lena Margrét að reyna fyrir sér hjá Skara HF. Hún vann silfurverðlaun með Skara í sænsku bikarkeppninni í vetur. Í gærkvöld tryggði Skara HF sér sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar um sænska meistaratitilinn.



