Íslenska landsliðið dróst í A-riðil með Ungverjum, Svartfellingum og Slóvenum í lokakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik sem fram fer 3. til 20. desember. Leikir í riðli Íslands verða leiknir í Oradea í Rúmeníu.
Ísland var í fjórða og neðsta styrkleikaflokki þegar dregið var í riðlana og fékk Ungverja úr efsta flokki, Svartfellinga úr öðrum flokki og Slóvena úr þriðja flokknum. Svartfellingar voru með Íslandi í riðli í undankeppninni sem lauk á sunnudaginn.
Evrópumótið fer fram í fimm löndum; Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Tékkland og Tyrkland.
Riðlaskiptingin:
| A-riðill: | B-riðill: |
| Ungv.land | Noregur |
| Svartfj.land | Rúmenía |
| Slóvenía | Sviss |
| Ísland | N-Makedónía |
| C-riðill: | D-riðill: |
| Danmörk | Holland |
| Spánn | Tékkland |
| Tyrkland | Austurríki |
| Grikkland | Króatía |
| E-riðill: | F-riðill: |
| Frakkland | Svíþjóð |
| Pólland | Þýskaland |
| Færeyjar | Slóvakía |
| Úkraína | Serbía |
Leikið verður í sex riðlum á fyrsta stigi mótsins og komast tvö efstu liðn áfram í millirðilakeppni.
Óstaðfest leikdagskrá:
3. desember: Slóvenía - Ísland, kl. 17.
5. desember: Svartfjallaland - Ísland, kl. 19.30.
7. desember: Ísland - Ungverjaland, kl. 17.
Leikstaðir riðlakeppninnar:
A-riðill: Oradea, Rúmenía.
B-riðill: Cluj-Napoca, Rúmenía.
C-riðill: Antalya, Tyrklandi.
D-riðill: Brno, Tékkland.
E-riðill: Katowice, Pólland.
F-riðill: Bratislava, Slóvakía.
-Milliriðlakeppnin verður leikin í Cluj-Napoca í Rúmeníu og Katowice í Póllandi.
-Úrslitahelgi EM verður haldin í Katowice í Póllandi.



