Einar Bragi Aðalsteinsson lék við hvern sinn fingur í kvöld og lagði grunn að sigri IFK Kristianstad á HF Karlskrona, 41:35, í fjórðu og síðustu viðureign liðanna í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Einar Bragi skoraði 10 mörk eins og sænski landsliðsmaðurinn Axel Månsson.
Sigurinn í Karlskrona í kvöld fleytti IFK Kristianstad áfram í undanúrslit.
Arnór Viðarsson og liðsfélagar í HF Karlskrona eru á hinn bóginn úr leik.
Arnór skoraði þrjú mörk fyrir HF Karlskrona.
Oddaleik þarf í rimmu Hammarby og IK Sävehof eftir að fyrrnefnda liðið jafnaði metin í einvíginu í kvöld með þriggja marka sigri í framlengdum leik í Partille, 39: 36. Hammarby hefur nú unnið tvo leiki í röð og hefur heimaleikjarétt í oddaleiknum á mánudagskvöldið.
Birgir Steinn Jónsson skoraði tvö mörk fyrir IK Sävehof.
Gunnar Steinn Jónsson er í þjálfarateymi Hammarby.



