- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Færeyingar verða án síns besta leikmanns í umspilsleikjum HM

- Auglýsing -

Elias Ellefsen á Skipagøtu, fremsti handknattleiksmaður Færeyinga um þessar mundir, getur ekki leikið með landsliði sínu í leikjunum mikilvægu við Bosníu í umspili fyrir heimsmeistaramótið um miðjan næsta mánuð. Elias hefur ekki enn jafnað sig af axlarmeiðslum sem hann varð fyrir skömmu fyrir jól. Hann píndi sig í gegnum Evrópumótið í janúar en hefur lítið getað leikið með THW Kiel síðan. Færeyski fréttamiðillinn Portal.fo segir að Elias muni ekki leika með Kiel næstu vikurnar.


Fjarvera Eliasar er skiljanlega mikið áfall fyrir færeyska landsliðið sem stefnir á að vera í fyrsta sinn með á heimsmeistaramóti í janúar á næsta ári.

Peter Bredsdorff-Larsen og Hjalti Mohr Jacobsen þjálfarar færeyska karlalandsliðsins völdu í morgun þá 16 leikmenn sem þeir ætla að tefla fram í leikjunum tveimur við Bosníu. Meðal leikmanna í hópnum eru Valsmennirnir Bjarni í Selvindi og Allan Norðberg.

Fyrri leikur Færeyinga og Bosníumanna verður í Tuzla fimmtudaginn 14. júní. Tveimur dögum síðar mætast lið þjóðanna á nýjan leik í Þjóðarhöllinni glæsilegu í Færeyjum. Samanlagður sigurvegari leikjanna tveggja tryggir sér farseðil á heimsmeistaramótið í Þýskalandi í janúar á næsta ári.


Færeyski landsliðshópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum:

Markverðir:
Pauli Jacobsen, Sandnes.
Tóraldur Kollsker, H71.
Skyttur og miðjumenn:
Tróndur Mikkelsen, HF Karlskrona.
Rói Ellefsen á Skipagøtu, IF Hallby HK.
Óli Mittún, GOG.
Pauli Mittún, Team Sydhavsøerne.
Vilhelm Poulsen, TSV Hannover-Burgdorf.
Peter Krogh, H71.
Bjarni í Selvindi, Valur.
Línumenn:
Teis Horn Rasmussen, Ribe-Esbjerg HH.
Pætur Mikkjalsson, Team Sydhavsøerne.
Helgi Hildarson Hoydal, H71.
Hornamenn:
Rói Berg Hansen, Køge Håndbold.
Leivur Mortensen, HC København.
Hákun West av Teigum, Füchse Berlin.
Allan Norðberg, Valur.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -