- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fyrsti leikur Íslands á upphafsdegi EM – miðasala er hafin

- Auglýsing -

Íslenska landsliðið mun hefja keppni á upphafsdegi Evrópumóts kvenna í handknattleik 3. desember. Fyrsti andstæðingurinn af þremur í riðlakeppninni verður landslið Slóveníu. Dregið var í riðla lokakeppninnar og hafnaði Ísland í riðli sem leikinn verður í Oradea í vesturhluta Rúmeníu, nærri landamærum Ungverjalands.


Auk Slóveníu verða andstæðingar íslenska landsliðsins Ungverjar, bronslið EM 2024, og Svartfellingar sem voru andstæðingar í undankeppninni sem lauk síðasta sunnudag.

Samkvæmt óstaðfestri leikjadagskrá verður leikjaröð íslenska landsliðsins eftirfarandi:
3. desember: Slóvenía – Ísland.
5. desember: Svartfjallaland – Ísland.
7. desember: Ísland – Ungverjaland.

Íslenska landsliðið leikur í Rúmeníu á EM kvenna

Miðasala er hafin!

Fyrir þá sem vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og síður vakna upp við vondan draum á elleftu stundu þegar miðar verða uppseldir er rétt að minna á að miðasala er hafin á Evrópumótið. Reikna má með góðri aðsókn á leiki íslenska landsliðsins vegna þess að ungverska landsliðið á sæti í riðlinum. Ríkur áhugi er fyrir handknattleik í Ungverjalandi. Stutt er á milli Oradea og Debrechen í Ungverjalandi. Aðeins um klukkustundarakstur. Rík hefð er fyrir handknattleik í Debrechen, jafnt karla sem kvenna.

Hlekkur á miðasöluna: https://tickets.eurohandball.com/women2026?_gl=1*1tckodb*_gcl_au*MTYwNzMzMjMwNi4xNzY4NjU1NDE3*_ga*MTg4MTY2NzIxOS4xNjcxMTMxNzkz*_ga_XGW5MVF1LJ*czE3NzY0MTQyNDMkbzIyNDMkZzEkdDE3NzY0MTQzMTIkajU2JGwwJGgw

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -