Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í One Veszprém leika á morgun til úrslita í ungversku bikarkeppninni í handknattleik. Vítakeppni þurfti til þess að knýja fram sigur í undanúrslitaleik One Veszprém og Pick Szeged í dag. Úrslitin réðust eftir að sænski landsliðsmarkvörðurinn Mikael Appelgren varði vítakast frá Janusi Daða Smárasyni leikmanni Pick Szeged. Lokatölur, 33: 32, fyrir One Veszprém.
Staðan var jöfn eftir 60 mínútna leik, 29:29, í viðureign erkifjendanna í ungverskum handknattleik. Eftir að leikmönnum liðanna hafði brugðist bogalistin í fyrstu umferð vítakeppninnar kom Bjarki Már liði One Veszprém á bragðið. Félagar hans skoruðu síðan í næstu þremur vítaköstum. Öll spjót stóðu á Janusi Daða þegar hann tók fimmta vítakast Szeged-liðsins. Sænski refurinn Appelgren sá við Janusi og þar við sat, 4:3, fyrir One Veszprém í vítakeppni.
Bjarki Már skoraði níu mörk, þar af fimm úr vítaköstum, í hefðbundnum leiktíma og bætti við tíunda marki sínu í vítakeppninni.
Janus Daði lék allan leikinn fyrir Pick Szeged, jafnt í vörn sem sókn. Hann skoraði þrjú mörk.
Síðar í dag skýrist hvort One Veszprém mætir NEKA eða Tatabánya KC í úrslitaleik bikarkeppninnar á morgun.
Leikirnir fara fram í Audi Aréna í Győr.



