Valur er kominn í öndvegisgóða stöðu í undanúrslitaeinvíginu við Fram eftir öruggan sigur í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í Lambhagahöllinni í dag, 27:18. Þar með vantar Valsliðið aðeins einn vinning til að binda enda á einvígið og leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn við Hauka eða ÍBV. Sex marka munur var á liðunum í hálfleik, 14:8.
Næst mætast liðin í N1-höllinni á Hlíðarenda á miðvikudagskvöld klukkan 19.30.
Viðureignin í Lambhagahöllinni í dag varð aldrei jöfn og um flest gjörólík þeirri fyrstu á milli liðanna. Valsvörnin var afar góð frá upphafi auk þess sem Hafdís Renötudóttir markvörður var vel með á nótunum. Framarar áttu þar af leiðandi afar erfitt uppdráttar og tókst aldrei að ógna Valsliðinu.
Harpa María Friðgeirsdóttir landsliðskona Fram meiddist á ökkla níu mínútum fyrir leikslok og kom ekkert meira við sögu.
Mörk Fram: Hulda Dagsdóttir 5, Ásdís Guðmundsdóttir 3, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 3, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 2, Valgerður Arnalds 2, Harpa María Friðgeirsdóttir 1, Katrín Anna Ásmundsdóttir 1, Silja Katrín Gunnarsdóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 13, Ethel Gyða Bjarnasen 2.
Mörk Vals: Ásdís Þóra Ágústsdóttir 5, Elísa Elíasdóttir 4, Lovísa Thompson 4, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Auður Ester Gestsdóttir 2, Arna Karitas Eiríksdóttir 2, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 2, Mariam Eradze 2, Sara Lind Fróðadóttir 2, Laufey Helga Óskarsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 14, Elísabet Millý Elíasardóttir 2.


