Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ í dag. Aron virðist hafa hlaupið á sig eftir að viðureign Hauka og FH í undanúrslitum Olísdeildar karla lauk síðasta föstudag.
„Aganefnd barst skrifleg skýrsla dómara vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar Arons Rafns Eðvarðssonar, leikmanns Hauka, að loknum leik Hauka og FH í úrslitakeppni Olís deildar karla þann 17.04.2026. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að starfsmaðurinn sé úrskurðaður í eins leiks bann,“ segir í úrskurði aganefndar.
Haukar eru fallnir úr leik í úrslitakeppninni. Aron Rafn tekur ekki út leikbannið fyrr en í upphafi næsta keppnistímabils.
Aganefnd HSÍ | Úrskurður 20.04.’26


