- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dánjal framlengir við Fram til þriggja ára

- Auglýsing -

Færeyingurinn Dánjal Ragnarsson hefur framlengt samning sinn við Fram til næstu þriggja ára. Hann gekk óvænt til liðs við Fram rétt í þann mund sem keppni í Olísdeildinni í haust hófst og spilaði sig strax vel inn í liðið.


Dánjal þekkti vel til íslenska handboltans þegar hann kom til fram eftir að hafa leikið með ÍBV frá 2021 og til ársloka 2023 og varð m.a. Íslandsmeistari með liði Eyjamanna vorið 2023.

„Ég er virkilega ánægður með að halda Dánjal áfram, ég kynntist honum á tíma mínum í Færeyjum og hann er mjög skemmtilegur sóknarmaður sem sýndi á köflum frábæra frammistöðu í vetur. Ég veit líka að það býr meira í honum og munum við í Fram leggja mikið á okkur til að kalla það fram hjá Dánjal!,“ er haft eftir Einari Jónssyni þjálfara Fram í tilkynningu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -