- Auglýsing -
Egill Jónsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Hauka til næstu ára. Egill, sem er uppalinn Haukamaður, hefur verið viðloðandi meistaraflokk Hauka undanfarin ár ásamt því að vera lykilmaður í U-liði og 3. flokki félagsins.
Egill mun núna koma meira inn í meistaraflokk en hann verður 19 ára í sumar. Egill er örvhentur og getur leikið bæði sem hornamaður og skytta. Einnig hefur Egill verið viðloðandi yngri landslið Íslands en síðasta sumar var hann hluti af U-19 ára landsliðinu sem hafnaði í öðru sæti á Opna Evrópumótinu í Gautaborg, segir m.a. í tilkynningu Hauka topphandbolta.
- Auglýsing -



