Íslandsvinurinn Gintaras Savukynas og landsliðsþjálfari Litáen hefur verið ráðinn þjálfari Bergsøy Handball, nýliða norsku úrvalsdeildar karla á næstu leiktíð. Savukynas þekkir vel til í þorpinu Fosnavogi í Mæri og Raumsdal. Hann þjálfaði Bergsøy Handball frá 2013 til 2016 er það var í þriðju efstu deild, en fær nú það vandasama verk að stýra liðinu í úrvalsdeildinni.
Eftir margra ára baráttu tókst Bergsøy Handball loks að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni á dögunum með sigri í næstefstu deild. Þjálfari liðsins síðustu tvö ár sagði upp í kjölfarið og var þá leitað til Savukynas sem er þrautreyndur þjálfari.
Savukynas lék á árum hjá Aftureldingu, Gróttu og ÍBV við góðan orðstír og hóf þjálfaraferilinn hér á landi auk þess að vera valinn íþróttamaður Aftureldingar 1999.
Savukynas hefur víða komið við í þjálfun á síðustu árum. Hann þjálfaði finnska meistaraliðið Riihimaen Cocks um árabil og úkraínska liðið HC Motor Zaporizhzhia frá 2020 til 2023. Motor var á þeim árum í Meistaradeild Evrópu. Aðstoðarþjálfari Savukynas hjá Motor var Roland Eradze.
Tveir Íslendingar í Fosnavogi
Tveir Íslendingar hafa þjálfað hjá Bergsøy Handball í Fosnavogi hvar búa innan við 4.000 manns. Einar Jónsson var hjá félaginu tímabilið 2020/2021 þegar lítið sem ekkert var leikið vegna covid19. Lárus Gunnarsson tók við í kjölfarið en var aðeins eitt ár, 2021/2022.



