- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sanngjarn Valssigur í fyrsta úrslitaleiknum

- Auglýsing -

Valur tók í kvöld forystuna í úrslitaeinvíginu við FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla með sigri í fyrsta leik liðanna, 37:33, í N1-höllinni á Hlíðarenda. Staðan var jöfn í hálfleik, 16:16. Næsta viðureign liðanna verður í Kaplakrika á mánudagskvöld og hefst hún klukkan 19.30. Vinna þarf þrisvar til þess að verða Íslandsmeistari.


Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi. Valur náði einu sinni tveggja marka forskoti. Annars var eins marks munur á annan hvorn veginn.

Á fjórðu mínútu síðari hálfleiks átti sér stað afdrifaríkt atvik. Eftir klafs á milli Jóns Bjarna Ólafssonar, leikmanns FH, og Valsarans Þorgils Jóns Svölu Baldurssonar varð niðurstaða dómaranna sú að sýna Jóni Bjarna rauða spjaldið. Þar með hvarf bit úr sóknarleik FH. Valsmenn gengu á lagið og náðu fimm marka forskoti, 23:18 og 24:19.

FH-ingum tókst að vinna sig inn í leikinn, nýta sér óvandaðan sóknarleik Vals um tíma og minnka muninn í eitt mark, 26:25, rúmum 13 mínútum fyrir leikslok. Í stað þess að láta kné fylgja kviði töpuðu FH-ingar þræðinum. Nokkrar sóknir fengu klaufalegan enda. Valsmenn létu ekki bjóða sér það tvisvar. Þeir juku muninn í fimm mörk. FH hafði ekki tök á að koma til baka og hleypa spennu í viðureignina á ný.

Alls töpuðu FH-ingar boltanum 13 sinnum í leiknum.

Arnór Snær Óskarsson átti stórleik fyrir Val. Auk 12 marka var hann með sex stoðsendingar.


Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 12/2, Andri Finnsson 6, Gunnar Róbertsson 6, Þorgils Jón Svölu Baldursson 3, Bjarni í Selvindi 2, Dagur Leó Fannarsson 2, Daníel Montoro 2, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 2, Björgvin Páll Gústavsson 1, Magnús Óli Magnússon 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 10/2, 23,8% – Jens Sigurðarson 0.

Mörk FH: Kristófer Máni Jónasson 7/3, Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Birkir Benediktsson 4, Birgir Már Birgisson 3, Garðar Ingi Sindrason 3, Gunnar Kári Bragason 3, Jón Bjarni Ólafsson 3, Símon Michael Guðjónsson 2, Ingvar Dagur Gunnarsson 1, Jakob Martin Ásgeirsson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 9, 29% – Daníel Freyr Andrésson 3/1, 17,6%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -