- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

ØIF Arendal þakkar Degi Gautasyni

- Auglýsing -

Norska úrvalsdeildarliðið ØIF Arendal þakkar Degi Gautasyni sérstaklega fyrir framlag sitt til félagsins þegar það gerir upp leiktíðina. Dagur lék með ØIF Arendal fyrri hluta þessa tímabils en einnig frá sumrinu 2023 fram í janúar 2025 er hann gekk til liðs við Montpellier á skammtímasamning.


Dagur lék alls 75 leiki fyrir ØIF Arendal og skoraði 365 mörk. Nokkrum sinnum var Dagur valinn í úrvalslið mánaðarins á tímabili sínu hjá félaginu.

„Takk fyrir þitt framlag og gangi þér vel í framtíðinni,“ segir m.a. í tilkynningu ØIF Arendal á samfélagsmiðlum í dag.

Dagur kom á ný til liðs við KA í janúar á þessu ári.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -